18.3.03

IE6 sevice pack1
MSN Messenger 5
teamspeak server & client
Adobe Premiere 6 tryout
DivX 5

PCTV decoder= K-TV

Osom jaðarbúnaður frá Edda....!
Gegt cool!



ASP Events Calendar!

meira þannig: http://www.hotscripts.com/ASP/Scripts_and_Components/Calendars/

8.1.03

Sælt verið fólkið!
Jáá..... þá er skólinn byrjaður og svona eitthvað..... amm. Í gær fórum við félagar ekki í neina tíma :) svo við fórum bara uppí Efstabæ með græjur og læti og komum okkur upp þessu líka fína útvarps stúdíói!! Tíðnin en ennþá FM 97.3 en ætlunin er að breyta henni þar sem þetta er á sömu tíðni og Rás 1 á Húsavíkurfjalli..... en allavegana, þá ómum við í loftinu og munum við hefja okkar fyrsta formlega útvarpsátt á stöðinni Útvarp Laugar í kvöld kl. 20.00 og ætlum við aðallega að reyna að skemmta okkur sjálfum og helst líka hlustendum!! Allavegana.... þá munum við gefa bíómiða á næstu bíómynd sem mun vera Harry Potter and the Chamber of Secrets! "Dobby has come to warn you, sir!!" Ég er búinn að sjá myndina og finnst bara fín, betri en fyrri myndin huxa ég! Það verður amk til mikils að vinna (svakalega) og því biðjum við fólk hvaðan sem er af landinu að stilla viðtækin á 97.3 þó að þetta náist ekki einu sinni uppí götu!! ;) jááá. Þá fer þetta að verða fínt hér bara.... danke suuee!!

26.12.02

Gleðileg jól!
Já, gott fólk, gleðileg jól og farsælt komandi ár! Hafiði það öll sem best um hátíðirnar...!

Þetta var jólakveðja. Þá að staðreyndum: Já, ekki hef ég nennt að skrifa í þetta dót hér í langan tíma, 11. desember síðast! uss... það er ekki eins og maður hafi ekki nóg að gera! og svo bara hef ég ekki nennt að vera að fara á netið í þessu blessaða jólafríi og verður það að flokkast undir árangur. nú já, það hefur svosem margt á daginn dregið eða eitthvað en þó ekki að það þýði að ég ætli að fara að upplýsa þv öllu hér í fjölmiðlum!! en jú, helsta er það að prófin gengi fínt og ég náði þeim öllum svo að það er fínt. Svo fengum við útvarspsendinn fræga fína eftir síðasta prófið úr viðgerð (góð tímasetning!) og var þá hafin fyrsta útsending útvarps Lauga og var útvarpað á tíðninni FM 97.3. En það verður önnur tíðni eftir áramót, væntanlega FM 98.7! mjög gott. Við hófum útsendingu kl. 13 og stóð hún til að verða 18! Það var mikið ruglað og spilað af múzík og fólk tekið í beina útsendingu og við gerðum símaöt ofl! Eftir áramót munum við gera all hrikalega útvarpsstöð með reglulegri dagskrá og verða þar ótal frábærir dagskrárliðir :) mjög gott - maður hlakkar bara til að byrja aftur í skólanum! en jú, þetta verður snilld en því miður ekki svo að allir landsmenn geti hlustað því að þetta næst ekki einu sinni uppí götu en studio herbergi okkar er staðsett í Efstabæ í Þróttó! hægt er að hlusta á okkur á upprunalegu Laugasvæðinu (sem er austan megin við ánna) og reyndar aðeins lengra - næst í Hóla. En við eigum eftir að skoða hvort við getum fengið þetta til að senda lengra.... já, þetta verður magnað! svo bara hefur jólafríið verið fínt fram að þessu og jólin mjög góð eins og venjulega án frekari skýringa. Hef lítið baukað í tölvu, aðallega fiktað í rafmagni, rafeindum og þess háttar, eilítið í server-side heimasíðugerð og eitthvað svoleiðis. Allavegana er fínt að vera í jólafríi og já! Á morgun mun Lord of the Rings - The Two Towers verða frumsýnd fyrir almenning og hlakka ég mjög svo mikið til að sjá hana! ekki held ég að ég fari á morgun - en það verður fljótlega!! Þetta er bara svo mikil snilld, allt sem tengist Hringadróttinssögu! Er núna að bauka við að spila Hringadróttinsspilið :) það er nú svosem frekar flókið og virðist muna taka frekar langan tíma þar sem maður stoppar lengi í Moría og fer í gegnum dæmið þar og svo í öllum stöðunum þarna í sögunni og endar svo í Mordor - komist maður þá þangað! Þetta er allt saman tær snilld!!

Jájá, ég nenni nú ekki að hafa þetta lengra, ákvað bara að láta í mér heyra þar sem að þeir félagar mínir Bergur og Depill hafa greinilega ekki haft neitt betra með tímann að gera en að segja fjölmiðlum frí lífi sínu ;)

en áður en ég kveð vill ég minna á að Plebbabókin eftir Jón Gnarr er bara tær snilld í gegn og er alveg brilliant!! Byrjaði strax að hlæja þegar ég sá kápuna!! Öll erum við plebbar en kannski bara mismikið! Plebbi þýðir samkv. Íslenskri orðamók Máls og menningar ómenningarlegur maður eða lákúrulegur maður! Þetta er bara snilld og efa ég ekki að við munum vitna í þessa bók í þáttum okkar á Útvarp Laugar!

Jájá, þá er þetta bara fínt og bara bið ykkur um að fara gætilega með kertin og athuga reykskynjarana vel!! Var að því áðan og missti heyrina öðrum megin þegar reykskynjarinn vældi í eyrað á mér eftir að ég fyllti hann af raforku sem geymd er í níu volta batteríi en ég kýs að kalla benzín!! ;) þakka fyrir lesturinn, kv. Ingólfur

11.12.02

...orðinn vitlaus!!
já, hægt er að taka eftir því að í dag hef ég skrifað um 1500 orð og hlýtur það að bæta upp hve léleg frammistæða mín við gagnvært lesendur og lyklaborði hefur verið síðustu dagana!! Lesiði nú - þetta eru hrikalega áhrifamiklir pistlar sem hafa fengið að koma úr heila mínum hér í kvöld og vonandi hefur það þá einhver áhrif ;) takk fyrir - bæbæ!!

Ritstjóri Reykskynjara ehf. - bloggstöðvar;
Ingólfur Sigfússon
Heimska komandi kynslóðar og lifi landsbyggðin!!
Já!! Ég var búinn að segjast ætla að rita pistil um heimsku komandi kynslóðar og hér kemur hann! Það kannski þarf ekki að flokka þetta undir heimsku heldur frekar hvernig þróunin virðist vera. Það var nú bara þannig að ég var að horfa á barnamessu Viltu vinna milljón? um daginn þar sem ungir krakkar fengu að spreyta sig og leggja peninga til góðs málefnis. Ekkert nema gott um það að segja. Núú... það er greinilegt að sumir eru gáfaðaðri en aðrir og ef það væri ekki svoleiðis þá væri ekkert gaman að lifa! enginn væri gáfaður, enginn væri heimskur, enginn sérstakur eða öðruvísi!! En já, í mörgum bekkjum á landinu er einhver sérstakur aðili talinn vera "proffinn" eða "heilinn" í bekknum og það þarf nú bara að vera einn þannig, þó það sé ekki nema til þess að svara þessum heimsku spurningum sem kennanum dettur í hug að spyrja! Þá er það ekkert nema bara gott.... Nú já, þegar liðið var eitthvað á þáttinn þarna og einhverjir búnir að spreyta sig og tala við Þorstein Joð kom einhver stúlka þarna í stólinn til hans og var hún úr Reykjavíkinni, eða þarna suðurlandinu. Já, hún sagði að margir segðu að hún væri "proffinn" í bekknum og svo bara voru það orðnir allir sem sögðu það og meirað segja kennarinn líka stundum! Svo að ég bjóst við að þarna væri upprennandi heimsspekingur eins og þeir proffar sem ég þekki eru.... nú já, hún náði nú að svara mörgum spurningunum en þegar 50.000 kr. spurningin var "Hvað gera kettir þegar þeir eignast kettlinga?" birtist - átti hún ekki svarið bak við eyrað og þurfti að leita til æðri máttarvalda. Hún vissi ekki að kettir gjóti kettlingunum sínum en ekki bara kasti þeim eða berji (beri). Þetta hlýtur að stafa af staðsetningu þar sem landbúnaður er síður stundaður í borgum en sveitum og oft eru kettir bannaðir í þéttbýli.... þar af leiðandi er það ekkert sjálfsagt mál að þessi börn viti hvað kettirnir gera! ...eða er það? nú... hún spurði salinn held ég og voru um 70% sem vissu það að gjóta væri málið. Nú já, áfram hélt hún að dæla inn réttum lokasvörum til Þorsteins og var það gott bara. En jú, svo kom spurning sem hún réði ekki við. Spurt var spurningu sem ég hélt nú að hvaða hálfviti sem er myndi vita, ef ekki vita þá getað reyknað út!! Spurt var hvaða stafir væru á takkanum 5 á GSM símum sem vitanlega eru j-k-l. Allir eiga nú GSM síma nú til dax og er ótrúlegt hvað sumir eigendur þessara tækja eru ungir! börn verða núbyrjuð að labba þegar þau fá gemsa eftir nokkur ár ef þessi þróun heldur áfram!! Jæja, hún þurfti allavegana stúlkan að fá að hringja í vinkonu sína til að afla frekari vitneskju, þar sem hún GAT ekki reiknað þetta úr.... sagðist þó oft hafa skrifað sms en bara myndi þetta ekki í augnablikinu... held nú bara að hún hafi logið því og sagt þetta svo að hún gerði sig ekki að alþjóðlegu nördi fyrir framan þjóðina! eða svona... en jæja, kannski man fólk þetta ekki, hvað er þetta! gefa fólkinu sénz! en já, jújú, stúlkan sem hún hringdi í vissi að sjálfsögðu hvað þetta væri án frekari erfiðleika og gat þá leikurinn haldið áfram. Nú, hún komst eitthvað áleiðis en svo kom spurning sem var henni algjörlega ofviða... Og það var nú það allra versta fannst mér... stelpan var í níunda bekk og spurt var hvaða vikudagur væri nefndur á eftir Óðni á dönsku.... jahh... byrjað er að kenna dönsku í skólum landsins í 7.bekk og ef menn hafa ekki lært að þekkja dagana eftir tveggja ára kennslu er held ég eitthvað að.... Það að ønsdag væri Óðinsdagur og líka miðvikudagur og svo Tyrsdag og Torsdag þetta dæmi væru svo Týr og Þór var eflaust það næsta á eftir ikke sem ég lærði í dönsku - þessu blessaða tungumáli sem virðist ekki vera uppáhaldsfag margra.... jæja, það var sama þótt hún tæki tvö röng svört burt, hún hafði bara ekki hugmynd um þetta!! Ja, kannski þekkir hún að ønsdag sé miðvikudagur, en hefur bara aldrei verið kennt að tengingin væri við Óðinn.... það er hugsamlegt. En hví ekki að útskýra málið betur fyrir nemendum sínum og segja að ønsdag sé óðinsdagur en ekki bara óskadagur eða hvað sem fólki dettur í hug.... þökk sé kennara mínum lærði ég það strax og eftir það hefur svosem ekki talist til mikilla vandræða að muna þessa daga. Jáá, hún ákvað að hætta og fékk held ég um 200.000 kr. sem var gáfulegra en að giska og fá þá kannski ekki nema einn fjórða af 200.000, eða 50.000. En já, hún fékk svo að taka í höndina á Þorsteini Joð og ganga í sætið sitt og nýr fórleikur hófst....

já, svona var þetta nú! Mér fannst þetta svona... jæja, hvað á maður að segja, efað þetta er krakki sem telst vera proffi í bekknum.... hvernig eru hinir þá??? ;) nei nei, kannski stressast maður upp og man ekkert þegar í stólinn er komið, maður man allt þegar heima í stofu er setið jújú. en jæja, spurning um að muna eða ekki muna heldur bara vita er kannski málið bara... já. hvort að þetta sé eitthvað sem tengist höfuðborginni á einhvern hátt, það veit ég ekki. Allavegana, þá veit ég um dæmi um að fullorðið fólk þvertaki fyrir að sá möguleiki sé til að gaman sé að búa "úti á landi" eins og þessir háttsettu, menningarlegu höfuðborgarbúar kalla það, amk sumir. Umrædd persóna sagði þetta já og hafði hann gengið í gengnum háskóla og var að kenna fullorðnu fólki það að engin von væri í landsbyggðinni og að best væri bara að eyða henni!! Þetta sagði maðurinn, er mér skilst, og er þá kannski verið að tala um að misnota sér stöðu sína og koma á ranghugmyndum um landsbyggðina. Hver af þessu fólki skyldi þá eiga eftir að láta sér detta í hug að flytja og búa úti á landi?? eflaust fáir! Og hann var svosem ekkert að segja þeim neinar nýungar, fólk hefur bara ákveðið að vonlaust sé að búa annarsstaðar en fyrir sunnan og er það því miður! Það er svosem ekkert skrýtið ef þetta er oft svona að fólksfækkun sé á landsbyggðinni og allir flytja suður! En hvað er þar svona spennandi? Þegar fólkið er komið þangað, í alla þessa menningu, bíó, veitingarstaði og hvaðeina sem hægt er uppá að bjóða, þá eru alls ekki allir sem nýta sér þessa þjónustu....

Hvað er betra en rólegt, öruggt og ómengað umhverfi þar sem maður getur farið og mygið þar sem manni hentar ef illa stendur á?? Samkvæmt áræðanlegum rannsóknum Assos bræðra, þá er aðeins eitt sem vantar á menningarpleisið Laugar í Rekyjadal – og það er rúllustigi!! ;) annarz er þetta allt saman hérna! :) Ef rúllustigi væri staðsettur hér, þá væri þetta sannkölluð menningarborg Evrópu 2004!!

Já, núna hef ég verið við lyklaborðið í góðar 30 mínútur og á þeim mínútum hafa framleiðst um 1200 orð!! Þetta er að nálgast tveggja blaðsíðna ritgerð og er ég bara hreykinn af henni, fengi eflaust 10 fyrir hana á alþjóðlegum mælikvarða ;)

Þá vill ég enda þetta bara með því að segja X-Landsbyggðin - X-Þingeyjarsveit!!

Takk fyrir lesturinn
Umfjöllun um reykskynjara
Já kveldið kveldið! aðeins tvö próf eftir og stærðfræðin var í morgun... jújú, gekk sæmilega, kom eitthvað svar útúr öllum dæmunum! jájá. en já, í dag kom hér sending í pósti sem leit út eins og eldspýtnapakki og svo kom í ljós að þetta var eldspýtnapakki!! En já, í ljós kom þegar pakkinn var opnaður að í honum voru engin eldfæri heldur varnir gegn þeim, þ.e. bensín í reykskynjara= batterí!! Utaná pakkanum stendur "Ekki brenna þig..." og svo flettir maður svona svaka flott eitthvað og þar stendur "...á því að gleyma að skipta um rafhlöðu í reykskynjaranum!" Fletti maður þessu meira þá stendur hvítt á rauðu stórum stöfum "Reykskynjari" og svo Skiptu um rafhlöðu einu sinni á ári. Ég tek þetta auðvitað mjög svo til mín og ætla héðan í frá að skipta um rafhlöðu einu sinni á ári... (rafhlaðan getur bara verið lúkkið eða eitthvað...) nú svo stendur að "Líftími reykskynjara er 8-10 ár." en það þarf þó ekki að vera alhæfing en mun bara koma í ljós hve langur líftími þessa reykskynjara sem þú ert nú að lesa sé...!! Nú, eftir að lesa þetta reif ég bakteríuna strax úr umbúðunum og kvein af stað og skipti um batterí!! Þessi sending er samvinnuverkefni Sjóvá-Almennra og Reykskynjara ehf. - bloggstöð og er ég framkvæmdarstjóri þessarar sendingar! ;) Ef þið fáið svona blátt umslag í pósti, með innbyggðum óvenjuþyngum eldspýtnastokk, þá þurfið þið ekki að óttast og halda að einhver hafi sett sprengju í eldspýtnapakka og ætli að reyna að sprengja yður í loft upp, heldur er þetta meinlaus hjálparsending og flokkast undir óvenju góða þjónustu! ;) Já, það má svo núna lesa þarna uppi í "honninu" eftirfarandi: "Æskilegt er að setja reykskynjara í hvert rými og sé húsið á fleiri en einni hæð þarf reykskynjara á hverja hæð." Þetta segir mér sem sagt að ef húsið er ekki á fleiri en einni hæð - þá þarf ekki að setja reykskynjara á hverja hæð.... jahhh... allavegana, þá skal fólk ekki vera að spara peninga heldur bara kaupa nóg af þessum reykskynjurum!! Það er talsvert ódýrara en að ætla að kaupa sér nýja búslóð.... Annars eru bara nánari upplýsingar um forvarnir og forvatnarbúnað á www.sjova.is. Takk fyrir mig - höldum gleðileg jól og skiljum kerti ekki eftir ein - þau geta gert okkur óbætanlegt tjón, þessir litlu kubbar!!

10.12.02

Daginn daginn!!
já, núna er maður svona á lokasprettinum, tvö próf búin. Íslenska í gær og íþróttir í dag, hefur gengið vel til þessa.... jájá, svona er þetta nú... þá er ég nú farinn heim...!! bæbæ, skrifa seinna um heimsku komandi kynslóðar... :/ ;)

6.12.02

The End nálgast....
Já. þá er þetta nú að verða búið - þessi skóla. fer í félaxfræði á eftir og svo er skólinn búinn, bara prófavikan eftir.... tjahhh...já. ekki er þetta nú búið fyrr en þau eru búin er það???? nei. já, ég bara segi fínt og nenni ekki að skrifa meira hér núna, kannske á eftir, ég veit það ekki! jájá, bæbæ!

5.12.02

æi nei nei!!
já, í gær var þetta svona bjart allt, en nei nei!! þessi web server er bara ruzl því að þetta styður php - ekki asp! kræst! en ég fann annað og sem átti að vera 100MB frítt en var það ekkert og maður þaf að taka eitt file í einu svona fáránlegt jájá.... ætla að halda áfram að leita af free web server með asp support svo að ég geti farið að prufa þessar asp síður mínar á netinu...!! jájá... sæl að sinni - bæbæ